NOTE: This article is more than 5 years old.
05 október 2007
/
Ný þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins
Úr Vefriti fjármálaráðuneytisins 4. október 2007 - þú getur gerst áskrifandi að vefritinu.
Fyrr í þessari viku kom út ný þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins.
Helstu niðurstöður eru:
- Umsvif í efnahagslífinu voru meiri árið 2006 en fyrri tölur gáfu til kynna, en hagvöxtur nam 4,2% í stað 2,6%.
- Samneysla sveitarfélaga og fjármunamyndun jukust meira en einkaneysla minna.
- Árið 2007 er áætlað að þjóðarútgjöld dragist saman um 5,2% vegna loka mikilla stóriðjuframkvæmda.
- Samt er reiknað með áframhaldandi vexti einkaneyslu og annarrar fjárfestingar en í stóriðju.
- Spáð er að hagvöxtur verði 0,7% á árinu í krafti stóraukins útflutnings áls og samdráttar innflutnings.
- Áframhaldandi viðsnúningur í utanríkisverslun leiðir til þess að hagvöxtur verður 1,2% árið 2008 þrátt fyrir samdrátt í útflutningi sjávarafurða, einkaneyslu og fjárfestingu.
- Árið 2009 er gert ráð fyrir áframhaldandi samdrætti í einkaneyslu en að fjármunamyndun taki að aukast á ný og vöruskiptahallinn haldi áfram að dragast saman og hagvöxtur verði 2,1%.
- Spáð er að viðskiptahallinn dragist hratt saman á næstu árum og verði 8,8% af landsframleiðslu árið 2008 og 7,6% árið 2009.
- Áætlað er að spenna á vinnumarkaði verði í hámarki í ár en slaki myndist á næstu árum með auknu atvinnuleysi.
- Spáð er að verðbólga minnki í 3,3% árið 2008 og að hún verði 2,8% að meðaltali á árinu 2009.
- Helstu óvissuþættir í þjóðhagsspánni varða frekari stóriðjuframkvæmdir, ástand á alþjóðlegum mörkuðum, gengi krónunnar og endurnýjun kjarasamninga á næsta ári. Í skýrslunni er jafnframt að finna útreikninga á fráviksdæmum. Annars vegar eru metin áhrif af 20% veikingu á gengi krónunnar og hinsvegar af byggingu nýs álvers og tengdra orkuvera.
Yfirlit þjóðhagsspár 2006-2009
Magnbreytingar frá fyrra ári, %
|
Flokkur |
Brb. 2006 |
Spá 2007 |
Spá 2008 |
Spá 2009 |
|---|---|---|---|---|
| Einkaneysla |
4,4 |
2,1 |
-0,9 |
-1,8 |
| Samneysla |
3,9 |
2,8 |
2,0 |
2,5 |
| Fjármunamyndun |
19,8 |
-22,2 |
-19,8 |
4,6 |
| Þjóðarútgjöld alls |
9,2 |
-5,2 |
-4,8 |
0,4 |
| Útflutningur vöru og þjónustu |
-5,1 |
8,7 |
9,2 |
3,9 |
| Innflutningur vöru og þjónustu |
10,1 |
-9,8 |
-7,0 |
-0,5 |
| Verg landsframleiðsla |
4,2 |
0,7 |
1,2 |
2,1 |