NOTE: This article is more than 5 years old.
10 október 2007
/
Frumvarp kynnt um samgönguáætlun
Tilbúin eru drög að lagafrumvarpi um samgönguáætlun sem koma eiga í stað gildandi laga nr. 71/2002. Þeir sem óska geta komið athugasemdum á framfæri við samgönguráðuneytið á netfangið [email protected]. í síðasta lagi 23. október.
Með lögunum um samgönguáætlun sem tóku gildi vorið 2002 er lögð áhersla á að samræma áætlanir og vinnu sem tekur til allra þátta samgangna. Unnið hefur verið eftir þessum lögum og tekist vel til. Einstaka atriði hafa þó komið upp sem talin eru mega betur fara og er tilgangur lagafrumvarpsins að sníða af vankanta og lagfæra einstök atriði. Breytingarnar eru fyrst og fremst til komnar vegna breytinga sem orðið hafa á umhverfi samgöngumála til dæmis með stofnun opinbers hlutafélags um flugvallarekstur og meiri áherslu á öryggismál.
Helstu breytingarnar sem frumvarpið hefur í för með sér eru þessar:
· að gera skýrar að samgönguáætlun er í raun ein áætlun til 12 ára og fjögurra ára áætlun er óaðskiljanlegur hluti hennar og nánari sundurliðun á fyrsta tímabili samgönguáætlunar;
· að heimila endurskoðun samgönguáætlunar við upphaf nýs kjörtímabils þótt ekki sé komið að reglulegri endurskoðun á fjögurra ára fresti;
· að skapa skýrari ramma um samgönguáætlun og þau markmið sem unnið er að með henni;
· að opna fyrir möguleika á annars konar framsetningu samgönguáætlunar en þá kaflaskiptingu sem nú er;
· að tryggja að forstöðumenn allra samgöngustofnana sem heyra undir samgönguráðuneytið eigi sæti í samgönguráð ef breytingar verða á því hverjar stofnanirnar eru.
Með lagafrumvarpinu er ekki ætlunin að breyta markmiðum og tilgangi gildandi laga og mun samgönguáætlun áfram taka til framkvæmda, öryggismála, umhverfismála, almenningssamgangna og fjármögnunar samgöngukerfisins. Þá eru ekki heldur lagðar til breytingar á því að samgönguáætlun er ætlað að lýsa vilja Alþingis í þesum málum með því að lagðar eru fram þingsályktunartillögur, annars vegar samgönguáætlun og fjögurra ára áætlun. Skal samgönguáætlunin endurskoðuð á tólf ára fresti en fjögurra ára áætlunin endurskoðuð á tveggja ára fresti.
Lagafrumvarpið má sjá hér.