NOTE: This article is more than 5 years old.
10 október 2007
/
Loðnuveiðar
Fréttatilkynning frá sjávarútvegsráðuneytinu
um loðnuveiðar.
Sjávarútvegsráðuneytið hefur í dag, að tillögu Hafrannsóknastofnunarinnar, gefið út reglugerð um loðnuveiðar á vetrarvertíð 2008. Samkvæmt reglugerð er heimilt að hefja loðnuveiðar 1. nóvember 2007. Bráðbirgðakvóti fyrir komandi vertíð hefur verið ákveðinn 205 þús. lestir og koma þar af rúmar 120 þús. lestir í hlut íslenskra loðnuskipa samkvæmt ákvæðum samninga um nýtingu loðnustofnsins.
Við þessa ákvörðun er miðað við að heildarkvóti komandi vertíðar verði 308 þús. lestir og gangi það eftir eykst heildarkvóti íslensku loðnuskipanna rétt um 100 þús. lestir. Ljóst er hins vegar að loðnurannsóknir Hafrannsóknastofnunarinnar nú í haust geta leitt til breytinga á leyfilegu heildarmagni.
Sjávarútvegsráðuneytið 10. október 2007.