NOTE: This article is more than 5 years old.

13 nóvember 2007

/

Staða forstöðumanns Verðlagsstofu skiptaverðs er laus til umsóknar

Staða forstöðumanns

Verðlagsstofu skiptaverðs

er laus til umsóknar.

 

            Staða forstöðumanns Verðlagsstofu skiptaverðs er laus til umsóknar. Skipað verður í stöðuna til fimm ára frá 1. janúar 2008. Aðsetur Verðlagsstofu er á Akureyri. Hlutverk hennar er að fylgjast með fiskverði og uppgjöri á aflahlut sjómanna og stuðla að réttu og eðlilegu uppgjöri á aflahlut sjómanna eins og nánar er kveðið á um í lögum  nr. 13/1998  um Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útgerðarmanna. 

 

            Forstöðumaður annast daglega stjórn stofnunarinnar og ber ábyrgð á fjárreiðum og starfsmannahaldi. Hann ber einnig ábyrgð á þeim stjórnsýsluverkefnum sem Verðlagsstofu skiptaverðs er falið samkvæmt lögum og öðrum stjórnvaldsfyrirmælum.


Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólapróf eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Þekking á sjávarútvegi
  • Reynsla af stjórnun og rekstri
  • Hæfni í mannlegum samskiptum

                Við stöðuveitingar á vegum sjávarútvegsráðuneytis eru jafnréttissjónarmið höfð í huga og því eru bæði konur og karlar hvött til sækja um starfið.

 

            Umsóknum skal skilað til sjávarútvegsráðuneytis, Skúlagötu 4, 150 Reykjavík fyrir 2. desember 2007.

 

           

 

           

Sjávarútvegsráðuneytið, 13. nóvember 2007