NOTE: This article is more than 5 years old.

21 nóvember 2007

/

Kynbundinn launamunur - Aðferðir til úrbóta

Jafnréttisstofa í samstarfi við Ár jafnra tækifæra og félagsmálaráðuneytið efnir til ráðstefnunnar Kynbundinn launamunur - Aðferðir til úrbóta þann 23. nóvember klukkan 13–16 í Sunnusal Hótel Sögu. Kynntar verða niðurstöður rannsóknar á kynbundnum launamun sem unnin var upp úr gögnum Hagstofu Íslands um atvinnutekjur þjóðarinnar. Í rannsókninni voru skoðaðar atvinnutekjur og heildartekjur kynjanna eftir hjúskaparstöðu, aldri og búsetu. Einnig verða ræddar ólíkar aðferðir sem notaðar hafa verið til að vinna bug á þeim vanda sem kynbundinn launamunur er.

Dagskrá:

13:00 Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra setur fundinn.

13:10 Tekjumunur karla og kvenna: Upplýsingar úr skattframtölum.
Ingólfur V. Gíslason, sviðsstjóri rannsóknarsviðs Jafnréttisstofu.

13:45 Kynjavöktun í aðdraganda kjarasamninga.
Maríanna Traustadóttir, jafnréttisfulltrúi Alþýðusambands Íslands.

14:05 Áform og aðgerðir - til að greina og eyða kynbundnum launamun.
Sigríður Lillý Baldursdóttir, starfandi forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins.

14:25 Kaffihlé.

14:45 Tala minna – gera meira.
Ingibjörg Óðinsdóttir, forstöðumaður mannauðssviðs Skýrr.

15:05 Markvissar aðgerðir skila árangri.
Anna Jörgensdóttir, starfsmannastjóri Hafnarfjarðarkaupstaðar.

15:25 Pallborðsumræður.

Fundarstjóri: Mörður Árnason, varaformaður Jafnréttisráðs.

Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur er ókeypis.