NOTE: This article is more than 5 years old.

07 desember 2007

/

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra færð ljósmyndabók Eyþórs Árnasonar að gjöf

Þann 6. desember s.l. komu fulltrúar Landssambands hestamannafélaga og landsliðsins færandi hendi til ráðherra og afhentu honum bók með ljósmyndum frá heimsleikum íslenska hestsins í Hollandi sl. sumar. Bókin sem er einungis gefin út í 15 eintökum inniheldur safn listavel tekinna mynda Eyþórs Árnasonar frá keppni og af mannlífinu á mótsstaðnum.