NOTE: This article is more than 5 years old.
18 desember 2007
/
Losun gróðurhúsalofttegunda frá vegasamgöngum hefur aukist mikið

Losun gróðurhúsalofttegunda frá vegasamgöngum jókst um 60% frá 1990 til 2006 að mati Vegagerðarinnar. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu fjármálaráðuneytisins. Þar segir ennfremur að í árslok 1990 hafi 134.000 ökutæki verið skrásett hér á landi en þau séu nú 292.000. Fjöldi ökutækja hefur því meira en tvöfaldast á þessu tímabili.
Fjármálaráðuneytið vinnur nú að heildarstefnumótun um skattlagningu ökutækja og eldsneytis með það að markmiðið er að hvetja til notkunar vistvænna ökutækja, orkusparnaðar og minni losunar gróðurhúsalofttegunda frá samgöngum.
Hér má lesa frétt fjármálaráðuneytisins í heild sinni.