NOTE: This article is more than 5 years old.
03 mars 2008
/
Nr. 10/2008 - Heildaraflamark í loðnu aukið um 50.000 tonn
Fréttatilkynning frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu
Á grundvelli ráðgjafar Hafrannsóknastofnunarinnar hefur heildaraflamark í loðnu verið aukið um 50.000 tonn. Heildaraflamark er þannig 207.000 tonn og þarf af koma um 152.000 tonn í hlut íslenskra skipa.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu,
3. mars 2008