NOTE: This article is more than 5 years old.
13 apríl 2008
/
Málþing um nýja sjónvarpstilskipun ESB

Menntamálaráðuneyti efnir til málþings um nýja tilskipun ESB um hljóð- og myndmiðlunarþjónustu. Íslensk stjórnvöld þurfa að innleiða tilskipunina fyrir lok árs 2009. Á málþinginu verður fjallað um helstu þætti tilskipunarinnar, fyrirsjáanlegar breytingar á lögum auk þess sem hagsmunaaðilar munu ræða málin í pallborði.
Málþingið verður haldið í Þjóðminjasafninu kl. 13.00 þann 10. apríl n.k. Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir.
Skjöl tengd málþinginu má finna neðst á þessari síðu.
DAGSKRÁ:
|
|
13.00 Menntamálaráðherra Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir flytur opnunarávarp. |
|
|
13.15 Oliver Schenk frá framkvæmdastjórn ESB fjallar um tilskipun 2007/65/EBE og svarar spurningum. |
|
|
14.15 Karl Axelsson, hrl. og dósent við lagadeild Háskóla Íslands fjallar um fjölmiðlalöggjöf hér á landi. |
|
14.30 Kaffihlé. |
|
|
|
14.50 Elfa Ýr Gylfadóttir, deildarstjóri í menntamálaráðuneyti fjallar um ákvæði er varðar auglýsingar í tilskipuninni og kynnir niðurstöður kannana á auglýsingum og viðhorfum til breytinga á auglýsingalöggjöf í íslensku sjónvarpi. |
|
|
15.30 Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna, fjallar um verkefni, sem unnið hefur verið að, um að takmarka markaðssókn gagnvart börnum. |
|
15.45 Pallborðsumræður. Fjallað er um nýja tilskipun ESB undir stjórn Benedikts Bogasonar, formanns útvarpsréttarnefndar. |
-
Fyrirlestur Olivers Schenk: From Television without Frontiers to Audiovisual without Borders (PDF) -
Fyrirlestur Karls Axelssonar: Lagalegt umhverfi fjölmiðla á Íslandi (PDF) -
Fyrirlestur Elfu Ýrar Gylfadóttur: Málþing um sjónvarpstilskipun ESB (PDF) -
Fyrirlestur Margrétar Maríu Sigurðardóttur: Markaðssókn sem beinist að börnum - Samstarfsverkefni umboðsmanns barna og talsmanns neytenda (PDF)
- Tilskipun nr. 2007/65/EBE - minnisblað (PDF)
Nánar um fjölmiðlamál á vef menntamálaráðuneytis

