NOTE: This article is more than 5 years old.
29 maí 2008
/
Rannsókn á ofbeldi
Í dag var af hálfu félags- og tryggingamálaráðuneytis undirritaður samningur við Rannsóknasetur í barna- og fjölskylduvernd um að Rannsóknasetrið taki að sér að gera rannsókn á ofbeldi karla gegn konum í nánum samböndum. Undirbúningur rannsóknarinnar er þegar hafinn en sjálf rannsóknin hefst í haust.