NOTE: This article is more than 5 years old.

30 maí 2008

/

Skipun skattstjóra á Skattstofu Vestfjarðaumdæmis

Fjármálaráðuneytið, fréttatilkynning nr. 8/2008

Fjármálaráðherra hefur skipað Rósu Helgu Ingólfsdóttur til að gegna embætti skattstjóra á SkattstofuVestfjarðaumdæmis frá 1. júlí 2008 til fimm ára.

Rósa lauk B.Sc. í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri árið 2006. Hún hefur starfað á Skattstofu Norðurlandsumdæmis vestra frá árinu 1995, fyrst sem þjónustufulltrúi í staðgreiðsludeild og svo sem deildarstjóri tekjuskattsdeildar.

Alls bárust fjórar umsóknir um starfið.

Reykjavík 30. maí 2008