NOTE: This article is more than 5 years old.

23 júní 2008

/

Skönnunarmiðstöð hjá sýslumanninum á Ísafirði


Frá Ísafirði
Svipmynd frá Ísafirði.

Í nýútkomnu vefriti dóms- og kirkjumálaráðuneytisins er fjallað um skönnunarmiðstöð sem hefur nú verið sett á laggirnar hjá sýslumannsembættinu á Ísafirði. Þar verða eldri þinglýst skjöl fyrir allt landið færð yfir á rafrænt form og er verkefnið veigamikill grunnur að sameiginlegu verkefni dóms- og kirkjumálaráðuneytisins og fjármálaráðuneytisins um rafrænar þinglýsingar. Auk þess er í ritinu fjallað um ný verkefni sýslumanna en markmiðið er að sýslumannsembættin verði nokkurs konar útstöð stjórnsýslunnar á landsbyggðinni.

Sjá vefrit hér.