NOTE: This article is more than 5 years old.

01 ágúst 2008

/

Ingibjörg Sólrún heiðursgestur á Íslendingaslóðum

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra verður heiðursgestur og fulltrúi ríkisstjórnarinnar á Íslendingadeginum í Gimli í Kanada að þessu sinni sem og á Íslendingahátíð í Mountain í Norður-Dakóta í Bandaríkjunum. Dagskrá hennar hefst í dag með athöfn við minnismerki um Stephan G. Stephansson við Garða í Mountain og stendur ferð utanríkisráðherra um Íslendingaslóðir í Vesturheimi fram á þriðjudag. Stórir ferðahópar Íslendinga sækja einnig hátíðarnar að heiman.

Utanríkisráðherra sendi forseta Íslands og fjölskyldu hans sérstakar árnaðaróskir sínar og Samfylkingarinnar frá Mountain í dag í tilefni af fjórðu embættistökuathöfn hans.