NOTE: This article is more than 5 years old.
09 september 2008
/
Flóttafólkið komið til landsins
Skömmu fyrir miðnætti í gær komu 29 palestínskir flóttamenn úr Al-Walleed flóttamannabúðunum til Íslands. Um er að ræða átta konur og börn þeirra, tíu telpur og ellefu drengir.
Ferðin til Íslands var löng og erfið en hún var farin í einni lotu án hvíldar og tók tvo sólarhringa. Hópurinn fór beint upp á Akranes í bifreið á vegum Guðmundar Jónassonar en fyrirtækið hefur allt frá árinu 1956 séð um að flytja án endurgjalds hópa flóttamanna sem íslensk stjórnvöld taka á móti frá flugvellinum að nýjum heimilum sínum.
Á Akranesi biðu fullbúnar íbúðir fólksins og stuðningsfjölskyldur buðu það velkomið. Nú tekur við aðlögun, en fyrstu dagarnir fara í hvíld og nauðsynlegan undirbúning vegna dvalarleyfa.
Félagsþjónustan á Akranesi hefur umsjón með verkefninu í bæjarfélaginu og hefur verkefnistjórinn, Linda Björk Guðrúnardóttir og samstarfsfólk hennar, unnið að undirbúningi með leikskólum, skólum og ýmsum fleiri aðilum, meðal annars heilsugæslunni og fundið hentugar íbúðir fyrir hverja fjölskyldu. Rauði krossinn hefur undirbúið stuðningsfjölskyldurnar og útvegað húsgögn og annan búnað í allar íbúðirnar.
Framkvæmd flóttamannaverkefnisins er á hendi félags- og tryggingamálaráðuneytisins á vettvangi flóttamannanefndar, í samstarfi við sveitarfélagið og Rauða kross Íslands.