NOTE: This article is more than 5 years old.

06 janúar 2009

/

Veiðar íslenskra skipa úr norsk-íslenskri síldarstofninum árið 2009

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur í dag gefið út reglugerð um stjórn veiða íslenskra skipa úr norsk-íslenska síldarstofninum árið 2009. Íslenskum skipum er heimilt að veiða samtals 238.299 lestir af síld á árinu 2009 og þar af 44.361 lest af síld innan norskrar lögsögu.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Sjá reglugerð.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu 6. janúar 2009.