NOTE: This article is more than 5 years old.

01 febrúar 2009

/

Ögmundur Jónasson tekur við sem heilbrigðisráðherra


Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra tekur við lyklavöldum að heilbrigðisráðuneytinu
Ögmundur Jónasson nýr heilbrigðisráðherra tekur við lyklavöldum af Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrrverandi heilbrigðisráðherra.

Ögmundur Jónasson tók í dag við embætti heilbrigðisráðherra og tekur hann við embættinu af Guðlaugi Þór Þórðarsyni.

Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, tók við lyklavöldunum í heilbrigðisráðuneytinu síðdegis, þegar fráfarandi heilbrigðisráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, afhenti lykla ráðuneytisins og kvaddi svo sem venja er til. Nýr ráðherra og sá fráfarandi skiptust á skoðunum um heilbrigðisþjónustuna og óskuðu hvor öðrum farsældar á nýjum starfsvettvangi.



Guðlaugur Þór Þórðarson fráfarandi heilbrigðisráðherra ásamt Ögmundi Jónassyni heilbrigðisráðherra