NOTE: This article is more than 5 years old.

02 febrúar 2009

/

Tvær stöður skrifstofustjóra lausar hjá samgönguráðuneytinu

Vegna skipulagsbreytinga eru lausar til umsóknar tvær stöður skrifstofustjóra hjá samgönguráðuneytinu. Umsóknarfrestur er til 16. febrúar næstkomandi. Umsækjendur eru beðnir að fylla út umsóknir á vefsíðunni: hagvangur.is.

Stöðurnar eru annars vegar skrifstofustjóri samgönguskrifstofu og hins vegar skrifstofustjóri samskiptaskrifstofu. Á samgönguskrifstofu er meðal annars unnið að stefnumótun og áætlanagerð í samgöngumálum og á samskiptaskrifstofu er meðal helstu verkefna vinna við stefnumótun og áætlanagerð í fjarskiptamálum.

Hæfniskröfur sem eiga við bæði störfin eru eftirfarandi:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Meistarapróf eða sambærileg gráða er nauðsynleg
  • Reynsla af stjórnun og rekstri er æskileg
  • Reynsla og hæfileiki til að miðla upplýsingum
  • Haldbær reynsla af áætlanagerð og verkefnisstjórn
  • Frumkvæði og samskiptahæfni

Upplýsingar veita Ari Eyberg, [email protected] og Elísabet Sverrisdóttir, [email protected].