NOTE: This article is more than 5 years old.
04 febrúar 2009
/
Laust embætti saksóknara
Auglýst hefur verið laust til umsóknar embætti saksóknara við ríkissaksóknaraembættið. Dómsmálaráðherra skipar í embættið frá og með 1. mars 2009. Umsóknir berist dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, Skuggasundi 1, 150 Reykjavík, eigi síðar en 18. febrúar nk.