NOTE: This article is more than 5 years old.

26 febrúar 2009

/

Boðað er til blaðamannafundar með forsætisráðherrum Íslands, Danmerkur, Noregs, Svíþjóðar og Finnlands og framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar í Lækningalindinni í Bláa lóninu fimmtudaginn 26. febrúar kl. 15.30

Anders Fogh Rasmussen, Fredrik Reinfeldt, Jens Stoltenberg og Matti Vanhanen komu til landsins í morgun til að sitja norrænt hnattvæðingarþing ásamt á annað hundruð boðsgestum hvaðanæva að á Norðurlöndum. Leiðtogar sjálfstjórnarsvæðanna Grænlands, Færeyja og Álandseyja sitja jafnframt þingið ásamt forystumönnum atvinnulífs á Norðurlöndum, fulltrúum fjölmiðla, borgarasamtaka, rannsóknastofnana og stjórnmála.

Á þinginu verður fjallað um alþjóðlegu fjármálakreppuna, loftslagsmál og gildi nýsköpunar og nýrra uppfinninga. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra Íslands er gestgjafi þingsins.

Aðalfyrirlesari hnattvæðingarþingsins, Kenneths S. Rogoff prófessor í hagfræði við Harvard háskóla, hélt í morgun erindi um alþjóðlegu fjármálakreppuna og efnahagshorfur á næstu árum. Þá hélt Steven Ciesinski aðstoðarforstjóri hins heimþekkta nýsköpunarfyrirtækis SRI Internatioanl erindi undir fyrirsögninni Nýsköpun og samkeppnishæfni þjóða.

Á hnattvæðingarþinginu var einnig kynnt Norræn hnattvæðingarvog fyrir árið 2009 (Global Pressure – Nordic Solutions?) og Norrænn nýsköpunarmælir. Hvorttveggja skýrslur sem greina stöðu Norðurlanda í alþjóðlegri samkeppni og á sviði nýsköpunar. Höfundur hnattvæðingarvogarinnar er Dr.Christian Ketels frá Harvard Business School.

Niðurstöðukafli skýrslu hans þar sem fjallað er um leiðir til að efla samkeppnishæfni Norðurlanda og mæta kreppunni og fyrirsjáanlegri efnahagslægð.

Meira um hnattvæðingarþing og hnattvæðingarvinnu norrænu forsætisráðherranna.

    

Tengiliður fjölmiðla: Sigrún Björnsdóttir:  [email protected]

Norðurlandaskrifstofu, Íslandi

sími: +354 545 8479.

farsími: +354 8208895