NOTE: This article is more than 5 years old.
03 mars 2009
/
Ráðherrar funda um atvinnutækifæri Íslendinga í Kanada
Ásta R. Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, tekur á móti Nancy Allan, atvinnu- og innflytjendamálaráðherra Manitoba í Kanada á morgun og munu ráðherrarnir funda um möguleg atvinnutækifæri Íslendinga í Kanada.
Skortur er á faglærðu vinnuafli í Manitoba og hefur Allan sýnt því áhuga að auðvelda atvinnulausum Íslendingum sem hafa áhuga á að starfa þar að fá tímabundið atvinnuleyfi. Ásta R. Jóhannesdóttir segir markmið fundarins að ræða útfærslu á verkefninu og að stefnt sé að formlegu samkomulagi í lok vikunnar.
Allan mun í Íslandsheimsókn sinni kynna sér ástand atvinnu- og innflytjendamála hér á landi. Meðal annars mun hún heimsækja Útlendingastofnun, Alþjóðahús, Alþýðusamband Íslands og Samiðn.