NOTE: This article is more than 5 years old.

05 mars 2009

/

Embætti seðlabankastjóra og aðstoðarseðlabankastjóra auglýst laust til umsóknar.

Forsætisráðherra hefur, í samræmi við ný lög um Seðlabanka Íslands, auglýst embætti seðlabankastjóra og aðstoðarseðlabankastjóra laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 31. mars nk. og skal umsóknum skilað í forsætisráðuneytið.

Í samræmi við ákvæði laganna verður skipuð matsnefnd til að leggja mat á hæfni umsækjanda um stöðunar. Áætlað er að skipað verði í stöðunar í maí nk.

Nánari upplýsingar veitir ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytisins.

Auglýsing um embætti seðlabankastjóra

Auglýsing um embætti aðstoðarseðlabankastjóra

Reykjavík 5. mars 2009