NOTE: This article is more than 5 years old.

17 mars 2009

/

Verkefnisstjórn um stefnumótun og undirbúning að kynjaðri hagstjórn

Fréttatilkynning nr. 16/2009

Fjármálaráðherra hefur ákveðið að skipa verkefnisstjórn um stefnumótun og undirbúning að kynjaðri hagstjórn (gender budgeting). Óskað verður tilnefninga frá félags- og tryggingamálaráðuneyti, Jafnréttisstofu og Rannsóknarstofu í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands í verkefnisstjórnina, en fulltrúi fjármálaráðuneytisins mun leiða verkefnið.

Jafnframt verður leitað eftir þátttöku jafnréttisfulltrúa allra ráðuneyta í starfinu. Verkefnisstjórninni verður falið að skila innan árs áliti og tillögum um aðgerðir til að innleiða leikreglur kynjaðrar hagstjórnar.

Fjármálaráðuneytinu, 17. mars 2009