NOTE: This article is more than 5 years old.
14 apríl 2009
/
Kjörskrár lagðar fram
Kjörskrár vegna kosninga um sameiningu sveitarfélaganna Akureyrarkaupstaðar og Grímseyjarhrepps 25. apríl verða lagðar fram eigi síðar en á morgun, miðvikudaginn 15. apríl.
Kjörskrár liggja frammi almenningi til skoðunar á bæjarskrifstofu Akureyrar og skrifstofu hreppsnefndar Grímseyjarhrepps. Athugasemdum eða kærum skal koma á framfæri við sveitarstjórnir sveitarfélaganna og samkvæmt 10. grein laga um kosningar til sveitarstjórna er heimilt að leiðrétta kjörskrár fram á kjördag.