NOTE: This article is more than 5 years old.

28 apríl 2009

/

Innritun fatlaðra nemenda í framhaldsskóla 2009

Ákveðið hefur verið að innritun fatlaðra nemenda, sem óska eftir skólavist á starfsbrautum framhaldsskóla, fari fram fyrr en innritun almennt í framhaldsskóla.

Ákveðið hefur verið að innritun fatlaðra nemenda, sem óska eftir skólavist á starfsbrautum framhaldsskóla, fari fram fyrr en innritun almennt í framhaldsskóla. Þetta er gert til þess að skólarnir fái meira svigrúm til að vinna úr umsóknum og undirbúa komu viðkomandi nemenda. Umsóknir um skólavist á starfsbrautum skulu hafa borist viðkomandi framhaldsskóla fyrir 15. maí nk.

Upplýsingar um starfsbrautir er að finna á heimasíðum framhaldsskóla og hjá náms- og starfsráðgjöfum og forsvarsmönnum starfsbrauta. Einnig má finna upplýsingar í vefritinu Nám að loknum grunnskóla.

Umsækjendur eru beðnir um að sækja um á eyðublöðum sem skólinn lætur þeim í té. Á umsóknareyðublaði skal einnig tilgreindur annar skóli til vara. Formleg svör um skólavist berast í júnímánuði.