NOTE: This article is more than 5 years old.
04 maí 2009
/
Yfir 1.000 staðfest inflúensutilvik í heiminum
Staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) - „svínainflúensunnar“ - voru í morgun alls 1.008 í nítján ríkjum í heiminum samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar Evrópusambandsins (sjá nánar sundurliðun aftast í þessari tilkynningu).
Einkenni veikinnar eru enn sem komið er væg nema í Mexíkó. Dauðsföll sem rakin eru til veikinnar eru 23, þar af 22 í Mexíkó og eitt í Bandaríkjunum.
Á síðasta sólarhring voru staðfest 30 ný tilvik á Evrópska efnahagssvæðinu, þar af 24 á Spáni.
- Engin tilfelli inflúensu A (H1N1) hafa verið staðfest hér á landi en rétt er að minna á að hin árlega inflúensa, sem gekk hér í vetur, er enn í gangi á Íslandi og hafa nokkur slík tilfelli verið greind hér á síðustu dögum.
- Engir sjúklingar með alvarleg einkenni inflúensu hafa verið lagðir inn á Landspítalann núna um helgina.
- Viðbúnaðarstig vegna yfirvofandi heimsfaraldurs er óbreytt hér landi og ekki áformað að grípa til róttækari aðgerða en þegar hefur verið gert.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin mælir nú með að talað sé um inflúensu A (H1N1) í stað „svínainflúensu“.
Að gefnu tilefni skal tekið fram að embætti sóttvarnalæknis styðst við upplýsingar frá Sóttvarnastofnun Evrópusambandsins (ECDC) um útbreiðslu inflúensunnar. Þær er að finna á heimasíðu stofnunarinnar http://www.ecdc.europa.eu/. Tölum um útbreiðslu veikinnar frá Sóttvarnastofnuninni annars vegar og Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni hins vegar ber ekki saman í mörgum tilvikum en sóttvarnarlæknir telur upplýsingar hinnar fyrrnefndu áreiðanlegri og vísar til þeirra.
- Upplýsingar um inflúensuna og ráðstafanir í því sambandi er að finna á landlaeknir.is, almannavarnir.is, influensa.is og heimasíðum Sóttvarnarstofnuanr Evrópusambandsins - ECDC, http://www.ecdc.europa.eu/ og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar - WHO, http://www.who.int/en/.
- Áréttað skal að birgðir sem íslensk heilbrigðisyfirvöld ráða yfir af lyfjum gegn inflúensu A (H1N1), 100.000 skammtar, eru annars vegar Tamiflu (80.000 skammtar) og Relenza (20.000 skammtar). Þetta er tekið fram hér vegna þess að dæmi eru um að í fjölmiðlum hafi verið fullyrt að allar birgðirnar væru Tamiflu-lyf en það er sem sagt ekki rétt.
Staðfest eru 1.008 sjúkdómstilvik inflúensu A (H1N1) að morgni 4. maí 2009
|
Staðfest tilfelli í Evrópu |
|
|---|---|
|
Austurríki |
1 |
|
Danmörk |
1 |
|
Frakkland |
2 |
|
Þýskaland |
8 |
|
Írland |
1 |
|
Ítalía |
2 |
|
Holland |
1 |
|
Spánn |
44 |
|
Sviss |
1 |
|
Bretland |
18 |
|
Alls í Evrópu |
79 |
|
Staðfest tilfelli utan Evrópu |
|
|---|---|
|
Kanada 101 |
101 |
|
Kólumbía 1 |
1 |
|
Kosta Ríka 1 |
1 |
|
Hong Kong 1 |
1 |
|
Ísrael 3 |
3 |
|
Mexíkó 590 |
590 |
|
Suður-Kórea 1 |
1 |
|
Nýja Sjáland 5 |
5 |
|
Bandaríkin 226 |
226 |
|
Alls utan Evrópu |
929 |
|
|
|
|
Alls staðfest tilfelli í heiminum öllum |
1.008 |
(Heimild: Sóttvarnastofnun Evrópusambandsins http://www.ecdc.europa.eu/)