NOTE: This article is more than 5 years old.

11 júní 2009

/

Settur ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu

Úr Vefriti fjármálaráðuneytisins 11. júní 2009 - þú getur gerst áskrifandi að vefritinu.

Fjármálaráðherra hefur sett Guðmund Árnason í embætti ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu frá 11. júní til 31. desember 2009.

Guðmundur er með háskólapróf í stjórnmálafræði og alþjóðastjórnmálum. Hann var skipaður deildarstjóri í forsætisráðuneyti í ársbyrjun 1992 og skrifstofustjóri í sama ráðuneyti frá ársbyrjun 1996.

Guðmundur var settur ráðuneytistjóri í menntamálaráðuneyti í september 2002 og skipaður ráðuneytisstjóri í því ráðuneyti í mars 2003. Menntamálaráðherra hefur veitt Guðmundi leyfi frá störfum á meðan hann gegnir starfi ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu.