NOTE: This article is more than 5 years old.

07 júlí 2009

/

Minnisblað Mischon de Reya

Fréttatilkynning nr. 44/2009

Samninganefnd Íslands vegna Icesave reikninganna leitaði ráðgjafar hjá fjölmörgum sérfræðingum hér á landi og erlendis, eins og fram kemur í greinargerð með frumvarpi fjármálaráðherra um ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta. Einn þessara aðila var lögmannsstofan Mischon de Reya, en ráðgjöf þeirra sneri einkum að því með hvaða hætti væri hægt að nýta eigur Landsbankans við uppgjör Icesave reikninganna. Í tengslum við þá vinnu bauð lögmannsstofan fram aðstoð sína við aðra þætti málsins.

Í lok mars fór utanríkisráðherra Íslands til London til fundar við David Miliband utanríkisráðherra Bretlands. Meðan á þeirri heimsókn stóð hitti hann m.a. fulltrúa frá Mischon de Reya. Lögmannstofan sendi fjármálaráðuneytinu minnisblað vegna Icesave málsins í tölvupósti. Í því má m.a. finna hugmyndir stofunnar um útvíkkun þess verkefnis sem unnið var með samninganefndinni. Í niðurlagi minnisblaðsins kemur fram að það sé ófullgert og geti tekið breytingum við frekari yfirferð gagna. Af þeim sökum var minnisblaði lögmannsstofunnar hvorki sent til utanríkisráðuneytis né einstakra nefndarmanna.
 
Auk fyrrgreindra þátta er snúa að nýtingu eigna Landsbankans er í minnisblaðinu fjallað um túlkun tilskipunar 94/19/EB um innstæðutryggingar og um kyrrsetningu eigna Landsbankans í Bretlandi. Hugleiðingar stofunnar hvað þessa tvo síðari þætti varðar bættu engu nýju við fyrirliggjandi röksemdir. Var ekki talin ástæða til að óska eftir frekari vinnu lögmannsstofunnar vegna þessa og kom því aldrei til þess að minnisblaðið væri fullgert. Röksemdir Íslands um takmörk ábyrgðar ríkisins á innstæðutryggingakerfinu og um ólögmæti kyrrsetningar eigna Landsbankans eru vel þekktar og hefur þeim verið haldið fram á öllum stigum samningaviðræðna við Breta og Hollendinga. Fyrir liggur í öðrum lagaálitum að dómstólaleið vegna innstæðutrygginga er ekki fær og að málshöfðunarfrestur vegna kyrrsetningarinnar rann út 7. janúar sl.
 
Minnispunktar Mischon de Reya er eitt þeirra fjölmörgu gagna sem tengjast meðferð Icesave málsins, en er hins vegar ekki grundvallarskjal þar sem tekið er fram af hálfu þeirra er rita punktana að þeir séu ófullgerðir, eins og að framan greinir. Samninganefnd Íslands, í samráði við ráðuneyti, Alþingi og rannsóknarnefnd Alþingis, hefur eftir fremsta megni reynt að gera öll skjöl er varða Icesave viðræðurnar aðgengileg almenningi. Hins vegar hefur almennt ekki verið talin ástæða til að birta ófullgerð drög heldur fullkláruð gögn. Vegna fréttar Morgunblaðsins í morgun hefur minnisblað Mischon de Reya verið birt á www.island.is. (skjal nr. 69).

Fjármálaráðuneytinu, 7. júlí 2009