NOTE: This article is more than 5 years old.

04 ágúst 2009

/

Nýr aðstoðarmaður viðskiptaráðherra


Benedikt Stefánsson, aðstoðarmaður ráðherra
Benedikt_Stefansson

Benedikt Stefánsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Gylfa Magnússonar viðskiptaráðherra. Hann hóf störf í dag.

Benedikt er fæddur árið 1964. Hann er stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð, B.Sc. í hagfræði frá Háskóla Íslands og M.A. í hagfræði frá University of California, Los Angeles (UCLA). Benedikt hefur m.a. starfað fyrir Morgunblaðið, bandaríska ráðgjafarfyrirtækið CASA/HNC, Íslenska erfðagreiningu og hagfræðideild Landsbankans.

Benedikt er kvæntur Björgu Kjartansdóttur viðskiptafræðingi og eiga þau þrjá syni.