NOTE: This article is more than 5 years old.

07 ágúst 2009

/

Embætti þriggja saksóknara við embætti sérstaks saksóknara laus til umsóknar

Dóms- og kirkjumálaráðuneytið hefur auglýst laus til umsóknar embætti þriggja sjálfstæðra saksóknara við embætti sérstaks saksóknara skv. lögum nr. 80/2009, er tóku gildi í dag. Saksóknararnir munu starfa skv. lögum um embætti sérstaks saksóknara nr. 135/2008 með síðari breytingum.

Umsóknarfrestur rennur út þann 26. ágúst nk. og er miðað við að skipað verði í stöðurnar eigi síðar en 1. október nk.

Sjá auglýsingu um embætti saksóknara við embætti sérstaks saksóknara á starfatorg.is

Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu,

7. ágúst 2009.