NOTE: This article is more than 5 years old.
07 ágúst 2009
/
Skipulagsreglur fyrir Reykjavíkurflugvöll staðfestar
Samgönguráðherra hefur samþykkt skipulagsreglur fyrir Reykjavíkurflugvöll og öðlast þær gildi við birtingu í Lögbirtingablaðinu í dag, föstudag 7. ágúst. Reglurnar og uppdrætti má sjá hér að neðan.

Uppkast að reglunum var kynnt á tímabilinu 17. mars til 14. apríl í ár. Þrettán athugasemdir og ábendingar bárust og voru ýmsar breytingar gerðar með hliðsjón af þeim. Greinargerð hefur verið send þeim sem gerðu athugasemdir.
Reglurnar má nálgast hér að neðan og á vefsíðum Flugmálastjórnar Íslands http://www.caa.is/Forsida/ og Flugstoða ohf. http://flugstodir.is/. Einnig má sjá umsögn um athugasemdir við reglurnar á þessum sömu stöðum.
- Umsagnir um athugasemdir við skipulagsreglurnar
- Reykjavíkurflugvöllur – skipulagsreglur – uppdráttur
- Reykjavíkurflugvöllur – skipulagsreglur – uppdráttur 2
- Reykjavíkurflugvöllur – skipulagsreglur – uppdráttur 3