NOTE: This article is more than 5 years old.

12 ágúst 2009

/

Æskulýðssjóður 2009

Næsti umsóknarfrestur í Æskulýðssjóð er 1. september 2009.

Næsti umsóknarfrestur í Æskulýðssjóð er 1. september 2009.

Hlutverk Æskulýðssjóðs er að styrkja eftirtalin verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka:


  1. Sérstök verkefni sem unnin eru fyrir börn og ungmenni og/eða með virkri þátttöku þeirra.

  2. Þjálfun forystufólks, leiðbeinenda og sjálfboðaliða.

  3. Nýjungar og þróunarverkefni.

  4. Samstarfsverkefni æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka.

Hvorki er heimilt að styrkja árvissa eða fasta viðburði í félagsstarfi, svo sem þing, mót eða þess háttar viðburði, né ferðir hópa.

Vakin er sérstök athygli á að umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á umsóknavef Stjórnarráðsins á vefslóðinni http://umsoknir.stjr.is.

Nánari upplýsingar um Æskulýðssjóð ogumsóknarferlið er að finna á vef menntamálaráðuneytis. Einnig veitir Valgerður Þórunn Bjarnadóttir upplýsingar í síma 545 9500 eða í tölvupósti á [email protected]

Menntamálaráðuneyti, 10. ágúst 2009.