NOTE: This article is more than 5 years old.

20 ágúst 2009

/

Ráðgjafanefnd um málefni er snerta útflutning hrossa

Í samræmi við 7. gr. reglugerðar nr. 449/2002, um útflutning hrossa skal starfa ráðgjafanefnd um það efni og skal hún jafnframt vera samráðsvettvangur stjórnvalda og þeirra sem að þeim málum vinna. Í nefndinni skulu sitja fulltrúar eftirtalinna aðila: Bændasamtaka Íslands, Félags hrossabænda, yfirdýralæknis og hrossaútflytjenda auk fulltrúa ráðuneytisins sem jafnframt er formaður.

Í nefndina eru hér með skipuð:

  • Kristinn Hugason deildarstjóri sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, formaður.
  • Guðlaugur Antonsson hrossaræktarráðunautur BÍ,
  • Hulda G. Geirsdóttir framkvæmdastjóri FH,
  • Gunnar Örn Guðmundsson héraðsdýralæknir,
  • Kristbjörg Eyvindsdóttir hrossaútflytjandi,