NOTE: This article is more than 5 years old.

31 ágúst 2009

/

Guðjón Arnar Kristjánsson ráðinn til sérstakra verkefna í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu.


Jón Bjarnason og Guðjón Arnar Kristjánsson
Jón Bjarnason og Guðjón Arnar Kristjánsson

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jón Bjarnason, hefur ráðið tímabundið Guðjón Arnar Kristjánsson fv. alþingismann til sérstakra verkefna í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu . Guðjón Arnar mun einkum sinna verkefnum er snúa að undirbúningi brýnna breytinga á fiskveiðilöggjöfinni sem ráðherra hyggst leggja fram á haustþingi, líkt og boðað var að gert yrði í stjórnaryfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.

Guðjón Arnar Kristjánsson hefur yfirgripsmikla þekkingu á íslenskum sjávarútvegi og telur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jón Bjarnason, sérstakan feng fyrir ráðuneytið að fá að njóta starfskrafta hans og mikillar reynslu.