NOTE: This article is more than 5 years old.
09 september 2009
/
Íslenskir dagar í Seattle
Fréttatilkynning nr 10/2009.
Öflug kynning á Íslandi, íslenskum vörum og þjónustu fer fram í Seattle dagana 10.-13. september næstkomandi enda hefur Icelandair nýlega hafið flug þangað. Borgarstjórinn þar mun útnefna dagana „Iceland Days“ í tilefni kynningarinnar. Átakið er á vegum Iceland Naturally verkefnisins, en fjölmörg íslensk fyrirtæki taka beinan þátt í kynningunni, og má þar nefna Icelandair, Icelandic USA, Inc., Reykjavíkurborg, Icelandic Glacial, Reyka Vodka, 66° Norður, Bláa lónið, Útflutningsráð, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið og Fiskifélag Íslands.
„Mikið starf hefur verið unnið undanfarin ár við að kynna Ísland í Bandaríkjunum og Kanada og við þær aðstæður sem við búum nú við er ærin ástæða til að setja enn aukinn kraft í að kynna þær einstöku vörur og þjónustu sem landið hefur uppá að bjóða,“ segir Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, og segir hún sóknarfærin leynast víða í N-Ameríku. Og Katrín bætir við: „Það hefur til dæmis komið í ljós að stór hluti farþega Icelandair frá Seattle koma hingað til lands sem ferðamenn en fljúga ekki einungis yfir Atlantshafið“
Sjávarútvegur í forgrunni
Seattle-búum gefst kjörið færi á að bragða á íslenskum sjávarafurðum í september þegar Icelandic USA, Inc. stendur fyrir tveggja vikna Íslandskynningu á veitingahúsum Boeing verksmiðjunnar, sem eru 40 talsins og þjóna 25.000 manns á dag. Þá verður Þórarinn Eggertsson frá veitingastaðnum Orange í Reykjavík með kynningu á íslenskri matargerð á hinum þekkta sjávarréttastað Ray's Boathouse. Hann mun bjóða gestum upp á íslenskar sjávarafurðir, vatn frá Icelandic Glacial, Reyka Vodka og skyr í eftirrétt.
Haldin verður ráðstefna um ábyrgar fiskveiðar í samstarfi við sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið, Icelandic USA, Inc., Fiskifélag Íslands og University of Washington Þátttakendur verða Dr. Sigurgeir Þorgeirsson ráðuneytisstjóri í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, Daniel A. Murphy Jr. framkvæmdastjóri hjá Icelandic USA, Inc., og Hlynur Guðjónsson ræðismaður og viðskiptafulltrúi Íslands í Norður Ameríku.
Ferðamennska og listalíf
Ísland nýtur síaukinna vinsælda sem ferðamannastaður en eitt af markmiðum Iceland Naturally er að vekja áhuga Bandaríkjamanna á áfangastaðnum Íslandi. Icelandair stendur fyrir vinnustofu og Íslandskynningu með þátttöku 14 íslenskra fyrirtækja auk nokkurra fyrirtækja frá Bandaríkjunum. Þá heldur Greg Eppich, framkvæmdastjóri Publicis Consultants PR fyrirlestur fyrir íslensku ferðafyrirtækin um fjölmiðlamarkaðinn í Bandaríkjunum.
Ekki er hægt að kynna Ísland án þess að minnast á þá fjölbreyttu listaflóru sem prýðir landið, en sérstök íslensk kvikmyndahátíð verður haldin í The Varsity leikhúsinu, auk þess sem Ólöf Arnalds heldur tónleika á „The Crocodile“.
Nánari upplýsingar:
Pétur Þ. Óskarsson, formaður Iceland Naturally, sími 863 6075.
Um Iceland Naturally
Í tengslum við landafundahátíðina vestanhafs árið 2000 gerðu íslensk stjórnvöld og nokkur íslensk fyrirtæki með hagsmuni á mörkuðum í Norður-Ameríku, með sér samkomulag um að styrkja ímynd Íslands og auka áhuga á íslenskri ferðaþjónustu og vörum. Samkomulagið kallaðist Iceland Naturally og gilti fyrst til ársloka 2004. Samkomulagið var síðan framlengt til ársloka 2008 og aftur í upphafi þessa árs og er það til fimm ára, eða til ársloka 2013.
Aðild að samkomulaginu, auk ríkissjóðs, eiga Icelandair, Reykjavíkurborg, Icelandic USA, Keflavíkurflugvöllur, 66° Norður, Bláa lónið, Icelandic Water Holdings ehf., Landsvirkjun, Reyka Vodka og Útflutningsráð.
Ríkissjóður hefur lagt árlega fram 700.000 USD en mótframlag fyrirtækjanna er u.þ.b. 500.000 USD auk þess sem þau fjármagna til viðbótar verkefni er snúa sérstaklega að þeim en eru undir merkjum Iceland Naturally. Iðnaðarrráðuneytið hefur stýrt verkefninu fyrir hönd íslenskra stjórnvalda. Auk þess eiga fimm aðildarfyrirtæki, utanríkisráðuneytið og forsætisráðuneytið fulltrúa í stjórn verkefnisins. Formaður Iceland Naturally er Pétur Þorsteinn Óskarsson en daglegur rekstur verkefnisins er í höndum Ferðamálastofu og Viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins í New York.
Við upphaf verkefnisins var gerð ítarleg rannsókn á stöðu og möguleikum Íslands á bandarískum markaði og kom í ljós að 89% þekktu engar vörur frá Íslandi og ímyndin var að miklu leyti tengd ís og snjó. Í kjölfarið voru ákveðnir markhópar skilgreindir, aðallega á austurströnd Bandaríkjanna, en þeir eru útivistarfólk og fólk með háskólapróf með áhuga á ferðalögum og mikinn kaupmátt.
Stjórn Iceland Naturally hefur skipulagt fjölmiðlakynningar, fjölmarga viðburði í einstökum borgum sem og kynningu á einstökum fyrirtækjum í verslunum og á veitingahúsum. Reglubundnar markaðsrannsóknir hafa síðan verið gerðar til að meta áhrif verkefnisins. Niðurstöður þeirra sýna að bandarískir neytendur hafa almennt jákvæðara viðhorf til Íslands en áður, eru meðvitaðri um vörur frá Íslandi og mun fleiri en áður hafa áhuga á að ferðast til landsins. Aðstandendur verkefnisins telja þessar niðurstöður gefa vísbendingar um enn frekari sóknarfæri á bandarískum markaði.
Reykjavík 9. september 2009