NOTE: This article is more than 5 years old.

10 september 2009

/

Ingvar Sverrisson verður aðstoðarmaður samgönguráðherra

Kristján L. Möller samgönguráðherra hefur ráðið Ingvar Sverrisson aðstoðarmann sinn. Tekur hann við starfinu á næstu dögum.
Ingvar Sverrisson er aðstoðarmaður samgönguráðherra.
Ingvar Sverrisson er aðstoðarmaður samgönguráðherra.

Ingvar Sverrisson hefur starfað sem framkvæmdastjóri Auglýsingastofunnar Jónson og Le´macks og Góðs Fólks undanfarin þrjú ár. Ingvar starfaði áður við rekstrarráðgjöf og hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra Samfylkingarinnar auk ýmissa trúnaðarstarfa fyrir Samfylkinguna. Ingvar var varaformaður Íþrótta og tómstundaráðs Reykjavíkur í 12 ár og hefur starfað í skólanefnd Fjölbrautaskólans í Breiðholti síðan 1993 og gegnir nú formennsku þar. Ingvar er formaður Íþróttabandalags Reykjavíkur og hefur gegnt þeirri stöðu síðan í febrúar í ár. Ingvar er í sambúð með Hólmfríði Björk Óskarsdóttur og eiga þau þrjá drengi.

Aðstoðaðmaður Kristjáns L. Möller samgönguráðherra er Ingvar Sverrisson.
Kristján L. Möller samgönguráðherra hefur ráðið Ingvar Sverrisson aðstoðarmann sinn.