NOTE: This article is more than 5 years old.

07 desember 2009

/

Endurskipulagning sparisjóða

Fréttatilkynning nr. 78/2009

Vegna umfjöllunar um stöðu Byrs sparisjóðs í fjölmiðlum undanfarna viku telur fjármálaráðuneytið rétt að eftirfarandi komi fram:

Í 2. grein laga nr. 125/2008 (neyðarlaganna) er heimild til þess að veita framlag úr ríkissjóði til sparisjóða og voru gefnar út reglur um skilyrði fyrir framlagningu stofnfjár þann 18. desember 2008. Átta sparisjóðir, þar á meðal Byr sparisjóður, sóttu um slíkt framlag og eru umsóknir þeirra nú til umfjöllunar hjá stjórnvöldum í samræmi við tilvitnaðar reglur.

Fjármálaráðuneytið vinnur nú að því í samráði við efnahags- og viðskiptaráðuneytið, Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitið að leiða fjárhagslega endurskipulagningu sparisjóðanna til lykta og nýtur sérfræðiaðstoðar ráðgjafarfyrirtækisins Oliver Wyman við úrlausn þess verkefnis. Gengur sú vinna samkvæmt áætlun.