NOTE: This article is more than 5 years old.

10 desember 2009

/

Auglýsing um styrki til námskeiða í íslensku vorið 2010

Auglýst er eftir umsóknum um styrki til námskeiða í íslensku sem ekki eru hluti af almennu námi á grunn- eða framhaldsskólastigi.

Auglýsing um styrki til námskeiða í íslensku vorið 2010

Auglýst er eftir umsóknum um styrki til námskeiða í íslensku sem ekki eru hluti af almennu námi á grunn- eða framhaldsskólastigi. Markmið með styrkjunum er að gefa öllum sem búsettir eru á Íslandi færi á að öðlast þá færni í íslensku að þeir geti orðið virkir samfélagsþegnar. Úthlutun miðast við þá fjárhæð sem Alþingi ákveður að verja til þessa verkefnis vorið 2010.

Fræðsluaðilar og fyrirtæki sem bjóða starfsmönnum sínum upp á skipulagða kennslu í íslensku og eru á fyrirtækjaskrá geta sótt um styrki. Fyrirtæki, sem ekki eru fræðsluaðilar, þurfa að láta undirritaðan samning við hæfan fræðsluaðila er annast kennsluna fylgja umsókninni.

Vakin er sérstök athygli á að umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi.

Umsóknareyðublöð og úthlutunarreglur eru aðgengilegar undir flokknum sjóðir og eyðublöð á vef mennta- og menningarmálaráðuneytis: menntamalaraduneyti.is. Umsóknir skal senda á [email protected].

Umsóknarfrestur er til 30. desember 2009.