NOTE: This article is more than 5 years old.

24 febrúar 2010

/

Framlög til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá 12. febrúar um áætlaða úthlutun framlaga til jöfnunar á tekjutapi einstakra sveitarfélaga á árinu 2010 vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti á grundvelli reglugerðar nr. 80/2001 með síðari breytingum.

Við tillögugerðina er tekið mið af nýju fasteignamati er tók gildi 31. desember hvað íbúðarhúsnæði í sveitarfélögum varðar.

Áætluð heildarúthlutun framlaganna í ár nemur  2.574,5 milljónum króna og greiðir  Jöfnunarsjóður 60% framlaganna fyrirfram mánuðina febrúar til júní. 

Uppgjör framlaganna fer fram með þremur jöfnum greiðslum mánuðina júlí, ágúst og september á grundvelli upplýsinga frá Fasteignaská Islands.