NOTE: This article is more than 5 years old.

09 júní 2010

/

Úthlutun Tækniþróunarsjóðs kynnt

Iðnaðarráðherra kynir úthlutun Tækniþróunarsjóðs til nýsköpunarverkefna fimmtudaginn 10. júní kl. 15-17 í húsakynnum Marel í Garðabæ. Athöfnin hefst með ávarpi iðnaðarráðherra, Katrínar Júlíusdóttur í kjölfarið kynnir Hilmar Veigar Pétursson, formaður stjórnar Tækniþróunarsjóðs úthlutun sjóðsins. Kristinn Anderson flytur ávarp fyrir hönd Marel og nokkur sprotafyrirtæki segja frá verkefnum sínum.

Dagskrá:

15:10 - 15:20        Ávarp iðnaðarráðherra, Katrínar Júlíusdóttur
15:20 - 15:40        Hilmar Veigar Pétursson, formaður stjórnar Tækniþróunarsjóðs kynnir úthlutun
15:40 - 15:50        Kristinn Andersen, þróunarstjóri Marel
15:50 - 16:20        Kynningar sprotafyrirtækja á verkefnum
16:20 - 17:00        Léttar veitingar