NOTE: This article is more than 5 years old.

16 júní 2010

/

Heimsýningin Expo 2010 - Ferðaþjónusta í Kína


Ráðherra og Hreinn Pálsson framkvæmdastj. þátttöku Íslands í EXPO 2010
Ráðherra og Hreinn Pálsson framkvæmdastj. þátttöku Íslands í EXPO 2010

Iðnaðarráðherra leiðir viðskiptasendinefnd 15 íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja, Höfuðborgarstofu, Ferðamálastofu og Útflutningsráðs á EXPO 2010. Heimsóknin sem stendur yfir frá 16. til 21. júní, hófst í dag með heimsókn ráðherra og sendinefndar í kanadíska, thailenska og kínverska skálana á heimsýningunni í Shanghai í Kína, Expo 2010. Gífurlega vel var tekið á móti sendinefndinni og áhugavert að sjá hve fjölbreytilegar framsetningar eru á kynningunum m.a. hjólaði ráðherra um teiknað landslag Kanada, fylgdist með þjóðdönsum frá 4 mismunandi héruðum Indlands og horfði á framtíðarspár um byggingarskipulag borga og bæja í Kína.

Nánar á vef um þátttöku Íslands á EXPO 2010; http://www.expo2010.is/ .