NOTE: This article is more than 5 years old.

17 júní 2010

/

Iðnaðaráðherra opnar viðskiptaþing í Shanghæ


Máþing islenskrar ferðaþjónustu
Málþing islenskrar ferðaþjónustu

Þjóðhátíðardagur Íslands er einnig dagur íslenskrar ferðaþjónustu á heimssýningunni EXPO 2010 í Shanghæ. Af því tilefni var efnt til viðskiptaþings þar sem fjölda fulltrúa kínverskra fjölmiðla og fyrirtækja var boðið að kynningu að hlýða á erindi ferðaþjónustuaðila og eiga fundi með fulltrúum í íslensku viðskiptasendinefndinni. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra opnaði viðskiptaþingið og ræddi meðal annars samskipti ríkjanna og tækifæri til að efla ferðaþjónustu milli landanna. Ávarpið á ensku er í heild á enska hluta vefs iðnaðarráðuneytisins.

Að loknu ávarpi ráðherra héldu Ferðamálastofa, Icelandair kynningu á Íslandi sem áfangastað í kjölfarið kynnti Höfuðborgarstofa Reykjavíkurborg og tónlistarhúsið Hörpu ásamt íslenskri menningu og fór yfir tækifæri á sviði menningarviðburða og ráðstefna að lokum kynnti Bláa lónið heilsulandið Ísland og Reykjavíkurborg.

Heimsóknir í íslensk fyrirtæki í Kína

Að lokinni dagskrá ferðaþjónstunnar á EXPO heimsótti ráðherra íslensk fyrirtæki sem hafa starfsstöðvar í Kína. Fyrirtækin eru leikjafyrirtækið CCP og Össur Prosthetics.

Þjóðarhátíðar- og ferðaþjónstudegi Íslands lauk svo með tónleikum tónlistarmannsins KK – Kristjáns Kristjánssonar á Evrópusviðinu á EXPO og móttöku iðnaðarráðherra í íslenska skálanum.

 Heimsokn til CCP ShanghaiHeimsokn i Ossur Shanghai