NOTE: This article is more than 5 years old.

23 júní 2010

/

Afmælisráðstefna EFTA fellur niður

50 ára afmælisráðstefna EFTA, sem vera átti í dag kl. 14:30, fellur niður þar sem aðalfyrirlesarinn, Jagdish Bhagwati, hagfræðingur og prófessor við Columbia háskólann í New York, komst ekki til landsins vegna vélarbilunar. Ennfremur fellur niður ráðstefna á morgun, fimmtudag, með Baghwati sem fyrirhuguð var í Háskóla Íslands.