NOTE: This article is more than 5 years old.

30 ágúst 2010

/

Námsorlof framhaldsskólakennara og stjórnenda framhaldsskóla

Umsóknir um námsorlof á framhaldsskólastigi fyrir skólaárið 2011-2012 þurfa að berast mennta- og menningarmálaráðuneyti eigi síðar en 1. október næstkomandi.

Umsóknir um námsorlof á framhaldsskólastigi fyrir skólaárið 2011-2012 þurfa að berast mennta- og menningarmálaráðuneyti eigi síðar en 1. október næstkomandi. Um námsorlof geta sótt framhaldsskólakennarar og stjórnendur framhaldsskóla. Einnig geta skólameistarar sótt um námsorlof fyrir hönd kennara viðkomandi skóla.

Vakin er sérstök athygli á að umsóknir um námsorlof skulu vera á rafrænu formi.

Sækja þarf um aðgang að umsóknavef ráðuneytisins, http://www.menntamalaraduneyti.is/rafraeneydublod/ 
Þar eru tvö eyðublöð; annað fyrir námsorlof kennara og stjórnendur framhaldsskóla og hitt fyrir umsókn skólameistara um námsorlof kennara í nafni skóla.