NOTE: This article is more than 5 years old.

16 september 2010

/

Hvernig á að haga afgjaldi af orkuauðlindum í eigu ríkisins?

Stýrihópur um mótun heildstæðrar orkustefnu stendur fyrir málþingi um afgjöld af orkuauðlindum í eigu ríkisins, miðvikudaginn 22. september 2010,  kl. 13:30-15:30 í Öskju, Náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands v/ Sturlugötu, stofu 132.

Dagskrá

  • Ávarp: Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra.
  • Inngangur: Vilhjálmur Þorsteinsson, formaður stýrihóps um mótun heildstæðrar orkustefnu.  

Framsögu flytja:

  • Friðrik Már Baldursson, hagfræðingur: Niðurstöður nefndar forsætisráðherra um afgjöld af auðlindum
  • Ásgeir Margeirsson, stjórnarformaður HS Orku, fulltrúi Samorku: Sjónarmið orkufyrirtækja
  • Sigurður Jóhannesson, hagfræðingur hjá Hagfræðistofnun HÍ: Hámörkun þjóðarhags?

Pallborðsumræður

Í pallborði sitja: Friðrik Már Baldursson, Ásgeir Margeirsson, Sigurður Jóhannesson, Vilhjálmur Þorsteinsson og Tryggvi Harðarson, sveitarstjóri Þingeyjarsveitar.

Fundarstjóri: Helga Barðadóttir, sérfræðingur í iðnaðarráðuneyti.

Allir velkomnir.

Nánir upplýsingar veitir Helga Barðadóttir, í síma 545 8500 eða í tölvupósti [email protected].