NOTE: This article is more than 5 years old.

04 október 2010

/

Stefnuræða forsætisráðherra

Í stefnuræðu Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra sem hún flutti á Alþingi í kvöld, kom meðal annars fram að ríkisstjórnin mun áfram tryggja fólki rétt á að geta fengið frest á nauðungarsölu meðan unnið er að úrlausn mála viðkomandi einstaklinga hjá lánastofnunum. Ráðherra fór yfir það helsta sem framundan er á vettvangi ríkisstjórnarinnar og einnig hve miklu hefði verið áorkað undanfarin misseri.

Forsætisráðherra sagði skuldaaðlögun eitt meginverkefni ríkisstjórnarinnar sem hefði lagt sig alla fram um að mæta vandanum. Svo verði áfram. „Talið er að 60-80 þúsund manns hafa notið margvíslegra úrræða og við höfum gjörbreytt réttarstöðu skuldara til hins betra frá því sem var fyrir hrun. Fólk sem ekki ræður við skuldir sínar á að geta fengið þær lagaðar að greiðslugetu og verðmæti eigna. Allt frá febrúar 2009 hafa ríkisstjórnin og Alþingi staðið fyrir frestunum á nauðungarsölum. Þann tíma átti að nýta til þess að gefa fólki svigrúm til þess að vinna úr sínum málum. Við munum áfram tryggja fólki þann rétt að geta fengið frest á nauðungarsölu, á meðan að unnið er að úrlausn mála viðkomandi einstaklinga hjá lánastofnunum,“ sagði Jóhanna sem hefur orðið fyrir vonbrigðum með hvernig bankarnir hafa tekið á skuldaaðlögun fólks og fyrirtækja. Við það verði ekki unað og stjórnvöld krefjist skýringa og úrbóta. Forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar sé að fara yfir húsnæðis- og skuldamál einstaklinga og útfæra frekar. Fimm ráðherrar vinni sérstaklega að þessu og jafnframt verði fulltrúar allra flokka á Alþingi kallaðir til þeirra verka.

Jóhanna fór yfir hvað efst er á baugi í atvinnumálum, helstu fyrirhugaðar framkvæmdir og verkefni. „ Þótt stærsta einstaka átakið í atvinnumálum sé að koma hér á hagstæðum skilyrðum fyrir atvinnulífið með lægri vöxtum, afnámi gjaldeyrishafta og eðlilegu aðgengi að fjármagni til uppbyggingar hefur ríkisstjórnin jafnframt beitt sér fyrir margvíslegum sértækum aðgerðum til að örva atvinnulífið og berjast gegn atvinnuleysi. Atvinnumálin eru og verða eitt mikilvægasta verkefni ríkisstjórnarinnar. Alþingi hefur nú heimilað stofnun félaga í eigu ríkisins um ákveðnar stórframkvæmdir og standa yfir viðræður við fulltrúa lífeyrissjóða um fjármögnun. Þátttaka lífeyrissjóðanna gerir samgönguyfirvöldum kleift að ráðast fyrr í umfangsmiklar framkvæmdir en auk þess er unnið að framkvæmdum við byggingu nýs háskólasjúkrahúss, nýs fangelsis og nýrra samgöngumiðstöðva í Reykjavík og á Akureyri.“

Af öðrum verkefnum nefndi ráðherra að meðal annars verði metið hvort endurvekja eigi Þjóðhagsstofnun í einhverri mynd. Verja eigi íslenskt umhverfi og náttúru og þau ómetanlegu gæði sem í henni felast, meðal annars með endurskoðun náttúruverndarlaga og afgreiðslu rammaáætlunar um verndun og nýtingu náttúrusvæða. Nýskipan í vatns-, orku- og auðlindamálum verði innleidd til að tryggja að arðurinn af auðlindum þjóðarinnar renni til hennar sjálfrar. Mótuð verði ný lagaumgjörð um sjávarútveginn, sem tryggi varanlegt eignarhald þjóðarinnar á auðlindum sjávar, og eðlilegt afgjald til þjóðarinnar fyrir nýtingarrétt auðlindarinnar. Áfram verði unnið að framgangi áætlunar um uppbygginu hjúkrunarrýma og heimaþjónustu fyrir aldraða um allt land, lokið verði við að endurskoða almannatryggingakerfið, unnin áætlun í mannréttindamálum og áætlun um úrbætur í málefnum barna og ungmenna verði fylgt eftir.

Í ræðu sinni nefndi forsætisráðherra sérstaklega átta veigamikil atriði sem ríkisstjórnin hefur, á sínum skamma starfstíma, komið til leiðar í glímunni við efnahagsvandann; árangur sem sumir erlendir sérfræðingar hafa líkt við kraftaverk:

  • Í fyrsta lagi hefur dregið úr atvinnuleysi, það var 7,3% í ágústmánuði, samanborið við 9% í upphafi árs. Við eigum ekki að sætta okkur við atvinnuleysi hér á landi og mikilvægt er að störfum er nú tekið að fjölga á ný. Fjölgun starfa nemur um 2.500 frá öðrum ársfjórðungi í fyrra til sama tíma í ár. 
  • Í öðru lagi hefur gengi krónunnar styrkst um 13% á undaförnum 12 mánuðum. 
  • Í þriðja lagi bendi ég á að stýrivextir hafa lækkað um tæp 12% prósentustig, úr 18% í 6,25%. Í kjölfarið hafa vextir banka og fjármálastofnana lækkað. 
  • Í fjórða lagi hefur verðbólgan ekki verið lægri í þrjú ár og mælist nú einungis 3,7% á ársgrundvelli. Undanfarna þrjá mánuði hefur verðlag raunar lækkað hér á landi. 
  • Í fimmta lagi hefur kaupmáttur launa vaxið lítillega á undanförnum þremur til fjórum mánuðum. 
  • Í sjötta lagi hefur verið góður afgangur á viðskiptum við útlönd. Viðsnúningur í erlendum viðskiptum er ævintýri líkastur. Árið 2008 var halli sem nam 22% af landsframleiðslu en árið 2010 er reiknað með afgangi. 
  • Í sjöunda lagi hefur skuldatryggingarálag á skuldbindingar ríkissjóðs hægt og bítandi verið að lækka, var talsvert yfir 600 punktum en er nú komið niður undir 300 punkta. Það sýnir með ótvíræðum hætti jákvætt mat fjármálaheimsins á árangri ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum.
  • Í áttunda lagi hafa orðið umskipti í afkomu ríkissjóðs. Á fjórum árum mun halli ríkissjóðs fara úr 216 milljörðum króna árið 2008 í 36,4 milljarða árið 2011.

Í upphafi stefnuræðu sinnar vék forsætisráðherra að skýrslu þingmannanefndar til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Sú þverpólitíska sátt sem náðist í nefndinni og á Alþingi um niðurstöður skýrslunnar sé afrek en læra þurfi af ákæruferlinu sem fylgdi í kjölfarið. [S]ú staðreynd blasir nú við að ósætti og óánægja ríkir vegna málsins, jafnt hér á þingi sem í samfélaginu. Við verðum að slíðra sverðin. Við höfum um það val að gera illt verra, grafa okkur niður í skotgrafir og láta reiðina stjórna för eða vinna okkur sameiginlega út úr vandanum. Ég lýsi mig reiðubúna til samstarfs við alla stjórnmálaflokka, bæði um löngu tímabæra endurskoðun á lögum um landsdóm og lögum um ráðherraábyrgð og aðra þá þætti, sem gætu grætt þau sár sem átök undanfarinna vikna hafa skilið eftir. Það hefur að sjálfsögðu ekki farið framhjá mér að ýmsir þingmenn kalla nú eftir kosningum. Muni nýtt þing, ný ríkisstjórn og tafarlausar kosningar auðvelda úrlausn þeirra viðamiklu verkefna sem framundan eru, þá mun ekki standa á mér að víkja til hliðar. Ég og ríkisstjórn mín munum hins vegar ekki skorast undan því að ljúka þeim verkefnum sem við blasa, sé það vilji þingsins.“