NOTE: This article is more than 5 years old.
29 október 2010
/
Ársfundur Vinnumálastofnunar 2010
Guðbjartur Hannesson, félags- og tryggingamálaráðherra, vill efla hlutverk Vinnumálastofnunar á sviði starfsendurhæfingar, enda aukist mikilvægi þessa vinnumarkaðsúrræðis við núverandi aðstæður í samfélaginu. Þetta kom meðal annars fram í ávarpi ráðherra á ársfundi stofnunarinnar í dag.
Ráðherra sagði glímuna við atvinnuleysi vera eitt af mikilvægustu verkefnum samfélagsins. Að sporna við því, vinna gegn neikvæðum afleiðingum þess með því að halda fólki virku, efla það til þátttöku á vinnumarkaði og veita því aðstoð til að ná þar fótfestu á ný.
Hann gerði að umtalsefni nýútkomna skýrslu Norðurlandaráðs um stöðu ungs fólks á Norðurlöndunum sem misst hefur atvinnuna. Skýrslan var gerð samkvæmt ákvörðun norrænna atvinnu- og menntamálaráðherra að frumkvæði þáverandi félags- og tryggingamálaráðherra, Árna Páls Árnasonar.
Í skýrslunni kemur fram að vandinn sé mestur hjá þeim sem hafa stutta skólagöngu að baki, þeim sem komast ekki inn á vinnumarkaðinn að skólagöngu lokinni eða missa vinnu eftir mjög skamman tíma á vinnumarkaði. Félagsleg og sálræn vandamál samfara atvinnuleysi eru þekkt og vandi fólks eykst, því lengur sem það er án atvinnu. Þessu fólki getur reynst mjög erfitt að ná fótfestu á vinnumarkaði, jafnvel þótt atvinnuástand batni og næg störf séu í boði. Ráðherra sagði að í ljósi þessa væri mjög þýðingarmikið að fólki standi til boða öflug, atvinnutengd endurhæfing sem í daglegu tali er nefnd starfsendurhæfing:
„Við verðum að horfast í augu við að þessi tegund vinnumarkaðsúrræða verður sífellt mikilvægari við þær aðstæður sem við búum við í dag. Ég hef sett mér það markmið að koma þeim málum í betri farveg en verið hefur en í því felst meðal annars að styrkja hlutverk Vinnumálastofnunar hvað þetta varðar. Þarna trúi ég einnig að stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins geti unnið vel saman að sameiginlegum markmiðum.“
Á ársfundinum voru kynnt átaksverkefni Vinnumálastofnunar sem beinast að því að virkja ungt fólk til athafna og átakinu ÞOR, þekking og reynsla, sem snýr að fólki sem glímir við langtímaatvinnuleysi. Átaksverkefnið Ungt fólk til athafna þykir hafa tekist mjög vel og kom meðal annars fram 1. október höfðu um 46% þeirra sem voru á atvinnuleysisskrá við upphaf átaksins verið skráð af atvinnuleysisbótum, farið í nám, fengið starf eða verið afskráð af einhverjum öðrum ástæðum.