NOTE: This article is more than 5 years old.

16 nóvember 2010

/

Athafnateygjan 2010


Andri Heiðar Kristinsson framkvæmdastjóri Innovit afhendir iðnaðarráðherra fyrstu Athafnateygju ársins 2010.
Andri Heiðar Kristinsson framkvæmdastjóri Innovit afhendir iðnaðarráðherra fyrstu Athafnateygju ársins 2010.

Iðnaðarráðherra Katrín Júlíusdóttir opnaði formlega Athafnaviku þann 15. nóvember s.l. og veitti viðtöku Athafnateygju Innovit.

Markmið Athafnateyjunnar er að mæla hversu miklu íslenska þjóðin getur komið í framkvæmd á einni viku og er teygjan hluti af Alþjóðlegri athafnaviku sem stendur yfir á sama tíma.

Það var Andri Heiðar Kristinsson framkvæmdastjóri Innovit sem afhenti iðnaðarráðherra fyrstu Athafnateygju ársins 2010.