NOTE: This article is more than 5 years old.

22 nóvember 2010

/

Málþing um eignarhald og áhættutöku orkufyrirtækja

Stýrihópur um heildstæða orkustefnu stendur fyrir málþingi um eignarhald orkufyrirtækja og áhættutöku sem tengist rekstri þeirra. Málþingið verður haldið föstudaginn 26. nóvember kl. 13:30-15:30  í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands, stofu 132. Sérstakur gestur málþingsins er Einar Hope, prófessor emeritus við norska viðskiptaháskólann í Bergen, en Einar er sérfræðingur á sviði orkuhagfræði. Ókeypis aðgangur og allir velkomnir.

Staður:

Askja, náttúrufræðahús Háskóla Íslands, stofa 132

Stund:

Föstudagur 26. nóvember kl. 13:30-15:30

Stýrihópur um heildstæða orkustefnu stendur fyrir málþingi um eignarhald orkufyrirtækja og áhættutöku sem tengist rekstri þeirra.

Sérstakur gestur málþingsins er Einar Hope, prófessor emeritus við norska viðskiptaháskólann í Bergen og sérfræðingur á sviði orkuhagfræði.

Dagskrá:

  • Pallborðsumræður og fyrirspurnir.

Fundarstjóri: Helga Barðadóttir, sérfræðingur í iðnaðarráðuneyti.

Ókeypis aðgangur, allir velkomnir.