NOTE: This article is more than 5 years old.

26 nóvember 2010

/

Blindir, sjónskertir og þeir sem ekki geta fyllt út kjörseðil með eigin hendi kjósa með aðstoð að eigin vali

Ákveðið hefur verið að blindir, sjónskertir og þeir sem ekki geta fyllt út kjörseðil með eigin hendi geti notið aðstoðar við útfyllingu kjörseðils á kjördag. Verður þeim heimilt að hafa með sér aðstoðarmann að eigin vali sér til aðstoðar í kjördeild.  Aðstoðarmaður mun undirrita sérstakt heit og því verður ekki þörf á að fulltrúi kjörstjórnar verði einnig viðstaddur. Eyðublöð fyrir aðstoðarmenn hafa verið send kjörstjórnum um allt land.