NOTE: This article is more than 5 years old.

10 janúar 2011

/

Viðmiðunarfjárhæð eignamarka vegna húsaleigubóta

Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga um húsaleigubætur, nr. 138/1997, og 7. gr. reglugerðar um húsaleigubætur, nr. 118/2003, tekur viðmiðunarfjárhæð vegna eignamarka við útreikning húsaleigubóta breytingum 1. janúar ár hvert í samræmi við breytingar á neysluverðsvísitölu. Samkvæmt gögnum frá Hagstofu Íslands hækkaði neysluverðsvísitalan um 2,46% frá ársbyrjun 2010 til ársbyrjunar 2011.

Frá og með 1. janúar 2011 er uppreiknuð viðmiðunarfjárhæð vegna eignamarka við útreikning húsaleigubóta kr. 6.063.975.-